Próflaus áfangi
Það sækir að þér kvíði er kemur
að kvöldi þíns hinsta dags,
um hvort það sé nóg sem þú hefur unnið heimi drottins til gagns.
Með harmkvælum tekst þér, eins og öðrum
sem aldinreit herrans gista,
að koma, ef ekki afreksverkum,
þó ýmsu smáræði á lista
sem þú lærðir í ofboði utan bókar
og ætlar að geti riðið
baggamuninn við endanlegt uppgjör
og opnað þér gullna hliðið
En það bíður ekkert yfirlitspróf,
heldur undur og stórmerki og furður,
og þessi sárust og þungbærust allra, að þú verður einskis spurður.
Jóhann S. Hannesson
Mér datt þetta ljóð í hug áðan þegar ég var að hugsa um það hvernig morguninn minn byrjaði með yfirþyrmandi stresshnút í maganum og uppköstum og hvernig ég sat í bílnum með glósurnar fram á síðustu mínútu áður en opnað var inn í prófið! Ég hefði reyndar líklega ekki orðið svekkt þótt ég hefði einskis verið spurð. Var sem sagt í skriflega lyflæknisfræðiprófinu áðan og það sem þetta er allt saman búið að taka á. Þvílík tveggja vikna lestrartörn og prófið alveg eins svínslegt og erfitt og maður bjóst við. En þetta gekk nú allt saman og ég er enn á lífi! :D
Nú er það bara skurðlkæknisfræðin eftir viku og hún mun nú verða minna mál þar sem prófsniðið er ekki eins svívirðilega ósanngjarnt og svo er ég auvitað búin að vera á skurðdeildunum eftir jól.
Svo er bara SUMARFRÍ!! Jahh eða allavega alveg heil helgi frí en það verður góð tilbreyting. Ég byrja síðan að vinna á geðdeildinni á mánudeginum.
Úff vá ég er annars farin að hlakka svo til sumarsins, sund og heitir pottar, bústaðarferðir, tjaldútilegur, fjallgöngur, lestur bókmennta sem ekki tengjast læknisfræði, tónlistarstúss og yndislegheit :)
Ég er nú þegar á leiðinni á ferna tónleika! Fer á Wayne Shorter annað kvöld, Bob Dylan á mánudaginn og Super Mama Jombo á laugardaginn eftir að ég klára skriflegu skurðlæknisfræðina. Og svo er það náttúrulega Eric Clapton, Sting and The Police, John Mayer og margir margir fleiri á tónlistarhátíðinni í Hyde Park í júní!!! Víííí!!!!