22. mars 2008 klukkan 20:03
Jæja krakkar mínir.. Núna er árshátíðin um garð gengin. Hún var mjög skemmtileg. Helmingurinn af kikkinu er nú klárlega að gera sig svona ótrúlega fína. Silkimjúkir nývaxaðir fótleggir, naglalakk á tám og fingrum, nostrað við hárgreiðsluna, skraut í hárið, elegant kjólar, háir hælar... ohh æðislegt. Verst að maður fær ekki tækifæri til að vera svona mikil dama oftar.
Ég fór á tónleika á blúshátíðinni á skírdag og þar söng Dietra Farr lagið „It's my turn, It's my time“ sem byrjar á orðunum: „I wanna be loved like a woman, I wanna be spoiled like an only child, I wanna be paid like a man, and be free to be wild...“ - alger töffari - talar fyrir flestar okkar held ég :) Andreu Gylfa, blúsdrottningu Íslands, tókst svo að gefa mér þessa þvílíku gæsahúð þegar hún tók Janis Joplin í beinni og söng „Ball and Chain“ af mikilli innlifun.... úff hún var svoo flott. Tónleikarnir í heild voru bara algert æði. Blús er svo flottur, jarðbundinn einhvern veginn.... ég hef alltaf verið hrikalega veik fyrir bluuues!!!
Sigurlaug Árnadóttir
03. mars 2008 klukkan 13:13
Ég var að koma úr myndgreiningarprófi. Er búin að skrolla í gegnum svo margar slæður af röntgen-, segulómunar-, ómunar- og tölvusneiðmyndum að þegar Ragnhildur Eik var að sýna mér mynd af vinkonu sinni í gær sem átti að standa vinstra megin á mynd skildi ég ekkert í því að hún leit alveg út eins og drengur... þangað til ég áttaði mig á því að ég var ekki að horfa á röntgenmynd (en þær eru speglaðar).
Annars er ég búin að vera á slysó í síðustu viku og verð áfram þessa viku. Búin að stinga á abscess og sauma sár á hendi, læra að gifsa og ýmislegt annað skemmtilegt :)
Ég ætla að skella mér á skíði núna með mömmu í þessari líka blíðu... yndislegt.... Farin!
P.S.
Vá það var svo gaman á skíðum, bongóblíða og gott færi. Hittum Önnu Heiðu og Gunna í brekkunni og skíðuðum helling með þeim. Það kom í ljós að Gunni er rosalega fær á skíðunum svo við fengum hann til að taka okkur í smá einkatíma og vorum svo í því að bæta "stílinn" okkar alveg fram að lokun!
Í dag hélt gifslærdómurinn áfram á slysó og við tókum fyrir neðri útlimi. Er búin að setja myndir í albúm!
Sigurlaug Árnadóttir