Prófíll

  • Nafn: Sigurlaug Árnadóttir
  • Netfang: sia3@hi.is
  • Atvinna: Nemi í lćknisfrćđi

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Litli lćknaneminn

01. nóvember 2007 klukkan 19:40
Nú hefur litla læknanemanum, mér, loksins verið hleypt inn á spítala höfuðborgarsvæðisins. Þar fæ ég að spreyta mig í mannlegum samskiptum, sjúkrasögutöku, líkamsskoðun, blóðtöku, skrifum innlagnarnóta, rannsóknarbeiðna og fleira og fleira.
Mér finnst þetta allt saman alveg ótrúlega skemmtilegt og spennandi. Byrjaði á smitsjúkdómadeildinni í Fossvogi sem var algert æði. Ég er á spítalanum frá 8-4 á daginn og svo þarf ég að taka allavega 1 vakt á viku sem stendur til miðnættis. Ég er búin að fara á tvær vaktir nú þegar sem hafa báðar verið mjög skemmtilegar og lærdómsríkar. Þetta hefur s.s. allt gengið stóráfallalaust fyrir sig. Það er nú samt ekki alveg laust við að maður hafi verið svolítið skrautlegur á köflum, kallandi asthmalyf þvagræsilyf og blóðsegaleysandi lyf sýrustillandi lyf og þar fram eftir götunum... en lyfjanöfn eru ábyggilega búin til með því að randomisera stöfum í einhverja stafahrúgu í exel og skeyta síðan er aftan við -ix eða flix, tíð eða eríð osfrv.... haha
En já maður verður auðvitað að sætta sig við að maður kemur ekki fullskapaður inn í þetta og þetta er langt og skemmtilegt lærdómsferli sem er að fara í hönd.
Sigurlaug Árnadóttir
1 athugasemd