17. maí 2007 klukkan 15:20
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa slitið samstarfinu - fréttirnar voru að renna inn á mbl.is
Til hamingju með það - nú getur þetta ekki annað en batnað!
Sigurlaug Árnadóttir
07. maí 2007 klukkan 23:22
Síðustu helgi fór ég í sumarparadísina á Kolsstöðum. Ég byrjaði ferðina í rómantískum prinsessuleik - ein í sveitinni með hrossagaukum og músarrindlum að skoða náttúruna og lakka á mér táneglurnar. Veðrið var alveg himneskt - glampandi sól, 16 stiga hiti og nánast logn. Daginn eftir komu síðan bandfélagar mínir og það var stillt upp í hlöðunni (sem er töluvert flottari en orðið hljómar) og æft og tekið upp . Planið er svo auðvitað að gefa út diskinn sem inniheldur 5 sjóðheit og rómantísk lög og ber titilinn Sigurlaug og Kolsstaðasteggirnir. Bíðið spennt.....grín

Þarsíðustu helgi fór ég líka í sveitina en þá skelltum ég, Inga Rós, Eyrún og Harpa okkur á sveitaball í Búðardal. Það munaði minnstu að ég og Harpa mættum á svæðið í lopapeysum og gúmmítúttum en sá misskilningur var leiðréttur rétt í tæka tíð. Mamma og pabbi Eyrúnar tóku á móti okkur með þvílíkum kræsingum að önnur eins gestrisni er vandfundin. Eftir frábært kvöd með stórfjölskyldu Eyrúnar hélt allt liðið á ballið. Meira að segja amma Eyrúnar tók til við að tvista. Þetta var rosalega skemmtileg upplifun og við stelpurnar höfum ekki dansað svona mikið lengi.
Á milli þess sem ég flý upp í sveit er ég annars bara að rækta frumurnar mínar... Fyrir þá sem ekki vita er ég að rannsaka áhrif fitufrumuboðanna leptíns og resistíns á yfirborðssameindir, efnatoga og bólguhvetjandi og -letjandi frumuboða og hlutverk þeirra í meingerð sóra (psoriasis). Það gengur allt saman ágætlega. Verst að ég er yfirleitt á labbinu (rannsóknarstofunni - á hreinni tungu) fram á kvöld svo ég hef lítið komið mér í að skrifa... En nú verður tekið á því - mánuður í ritgerðarskil og fundarhöld!!!!!
Set inn myndir úr helgarfríunum á morgun!
Sigurlaug Árnadóttir